top of page

Slæmt aðgengi

Blint fólk og þeir sem sjá illa geta ekki vitað hvenær græni karlinn er kominn ef engin hljóðmerki gefin.

Gott aðgengi

Hérna geta allir farið yfir á græna kallinum því bláa og gula boxið býr til hljóðmerki svo allir heyra bæði þegar það er rauður karl og þegar það er grænn karl.

Slæmt aðgengi

Maður þarf aldeilis að vera fótalipur til að komast inn á þetta kaffihús.

 

Þeir sem nota hjólastól, hækjur eða eiga erfitt með að ganga komast ekki upp þessar tröppur.

Gott aðgengi

Hér er önnur saga, á þetta kaffihús komast allir því hér eru bæði tröppur og skábraut, brautin sem er eins og rennibraut.

bottom of page